Sögur úr Sveitinni

mínar ær og kýr

27.11.2007 19:47:32 / hvanneyrun

Því ég var að dansa og dæræræræ og síðan fór ég og ræræræræ

Eins og glöggir (já og jafnvel óglöggir líka ef útí það er farið;) lesendur hafa eflaust tekið eftir þá nenni ég þessu bloggi ómögulega og bið ykkur því vel að lifa.

Ef þið viljið fréttir af "dömunni" þá getiði bara hringt í mig (er búin að finna símann minn aftur og hef því endurheimt gamla númerið mitt)

Ég útiloka þó ekki óregluleg uppdeit á effessugellu-síðunni


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 14:32:15 / hvanneyrun

roaming the land whyle you sleep...

Jæja börnin góð ég lofaði víst að vera duglegri að blogga. Þau undur og stórmerki eru að gerast á Tannstaðabakka að það var mislitur hrútur settur á. Þetta hefur nú ekki gerst í manna minnum. Sá heppni ber nafnið Svarti-Galdur Kæksson og eigndinn er heimasætan á bænum, höfundur þessa bloggs. Svo gerðist ég nú svo djörf að kaupa mér golsóttan hrút af Öllu á Reykjum…er að hugsa um að kalla hann Grols ;)

 

     Annars fór ég á stóðréttaball hérna í Víðihlíð um seinustu helgi með honum Geirmundi. Það var mikið stuð en eitthvað hefur mér verið farið að leiðast þarna undir lokin því ég fékk einhverja flugu í hausinn um eitthvað svakalegt djók sem ég vil eiginlega ekki tjá mig um hérna inni….það var fyndið, verst að það voru víst einhverjir sem tóku fíflalætin í mér alvarlega.  ef þið viljið heyra meira þá getiði bara hringt í mig…ég er í síma 8960719 þessa dagana því mér lánaðist það að týna símanum mínum á ballinu, hvort sem honum var stolið eða er bara týndur einhversstaðar. Þetta er númerið hennar mömmu, en hún og hann faðir minn brugðu sér til Tenerife í gær og verða þar næstu vikuna. Á meðan er ég ein með búið (nýt reyndar smá aðstoðar) Það er alveg fullt að gerast um helgina sem mig langar til að taka þátt í, Ball á barnum og tónleikar í félagsheimilinu, en því miður sé ég mér nú varla fært að fara eitthvað að skemmta mér þar sem ég er nú bara að frá 8 til svona 21 og er þá bara alveg búin áþví. Mikið rétt og nóg komið af blaðri, þarf að fara að dreifa sagi í annað kjúklingahúsið því það koma ungar í það á Sunnudaginn.


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.09.2007 19:49:02 / hvanneyrun

Why does happyness feel so wrong? why does missery feel so sweet?

Svona í tilefni af því að það eru örugglega allir löngu hættir að nenna að kíkja inná þessa mjög svo óvirku síðu ætla ég að henda inn svona eins og einni færslu. Það hefur nú margt og mikið verið brallað síðan síðast og nenni ég enganveginn að telja það allt upp því að tæki mig alla nóttina og enginn myndi nenna að lesa það allt saman. Í staðinn vil ég endilega deila með ykkur gleðinni í hjarta mér sem barasta knýr mig til að blogga. Já góðir hálsar, ég er búin að finna gleðina aftur sem ég er búin að leyta að lengi lengi. Einstaklingurinn sem færði mér þessa gleði í dag ber nafnið Smári og er frá bæ sem heitir Smáhamrar. Hann er afskaplega sætur, ljúfur, fölur og fallegur. Stæltur og sterklegur…kannski heldur feitur en enginn er fullkominn. Maður verður nú víst að líta framhjá því þegar stigunin er uppá 87,5!!! Mikið afskaplega hlakka ég til að sjá hvernig afkvæmin hans koma út næsta haust. Svo verður lambaskoðun hjá okkur á morgun og þar gæti verið falin enn meiri gleði…eða vonbrigði, hver veit…vonum að það verði það fyrrnefnda. (bind nefninlega svolitlar vonir við Svarta-Galdur Kæksson, já eða golsótta hrútinn frá Reykjum sem verður skoðaður á hinndaginn) Kem með nánari pistil um það síðar…(lofa samt engu!) Svo verður maður vonandi duglegri að blogga þegar maður verður kominn á Hvanneyri (lofa samt engu með það heldur ;))…Jóna, ég geri klukkið bara þá, nenni því ekki núna….En ég byrja samt ekkert í skólanum fyrren 22. Október þannig að það er tilgangslaust að halda niðrísérandanum þangað til


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 11:09:48 / hvanneyrun

En ég vild´ ég ætti töfratöng til að toga til mín gellur...

Hæ hæ...Bara að láta alla vita að ég komst inn á Hvanneyri...*montimont* 8)

» 6 hafa sagt sína skoðun

08.06.2007 11:27:02 / hvanneyrun

My stomac dropps and my guts turn...

Jæja þá í þetta sinn

Ég er margoft búin að gera heiðarlegar tilraunir til að setjast aðeins niður og segja frá því sem á daga mína hefur drifið. Einhvernveginn hefur það hinsvegar alltaf farið útum þúfur.

Sauðburðurinn er búinn. Seinasti gemmsinn rembdi útúr sér lambi 31. Maí og mamma dansaði stríðsdans af gleði yfir því að þetta hafi klárast fyrir mánaðamótin og engar eftirlegukindur eftir inni lengur....nema ein sem við vorum búin að henda út en þurftum að taka hana inn á pensilínkúr því hún fékk júgurbólgu í vonda veðrinu. Talandi um veðurfarið fyrir og um hvítasunnuhelgina. Við (aðallega mamma, en alls ekki Guðrún) hrósuðum því mikla happi að í lok sauðburðar voru engir heimalningar, við vorum svo geðsjúk í að venja undir 8) En nei nei, það var auðvitað slatti af rollum komnar út þegar vonda veðrið kom. Tvær gamlar beyglur veiktust eitthvað í kuldanum og drápust nokkrum dögum seinna. þær voru báðar einlembdar, Svo þarf að taka annað lambið undan júgurbólgurollunni og ég sá svo um daginn eina skjátu í minni eigu sem við vorum að reyna að venja undir en þá var hún búin að stinga lambið af og var bara með sitt eigið. Þarna eru á einu bretti komin 4 lömb sem eru móðurlaus þannig að það má segja að sá hlær best sem síðast hlær og í þessu tilviki er það Guðrún sem þráir heimalninga :haha:

Annars var ég líka í Bæ (hinumeginn við fjörðinn) í sauðburði og gekk það bara vel. Voru reyndar frekar mörg lömb sem þurfti að gefa með, þrílembingar og fjórlembingar og svoleiðis dót. Ég var í Bæ í 2 vikur, Seinni vikuna meiddi pabbi sig eitthvað í þumalfingur hægri handar þannig að hann gat ekki mjólkað. Ég varð þessvegna að keyra á milli Bæjar og Tannstaðabakka til að mjólka og vera í sauðburði... það eru 42 kílómetrar á milli (önnur leiðin) þannig gekk það í heila viku og var ég orðin vel út keyrð eftir það.

Um seinustu helgi var svo svaka óvissuferð með effessugellunum. Við fórum á kajak, skoðuðum flúðasveppi og kíktum á einhver sveitabæ þar sem við fengum að sjá mjaltir og lítil lömb, merkilegt nokk ;) Svo gistum við í bústað rétt hjá Flúðum. Þetta var svakaleg skemmtiegt og rosa stemning!

Svo átti ég afmæli í fyrradag og er orðin 25 ára...hálfnuð uppí fimmtugt, kvartaldar gömul :^) í tilefni dagsins mjólkaði ég beljur og gaf nautgripum hey.... hehe en svo bakaði ég kökur lika og bauð Sibbu, Báru, Elsu og Elvari í smá kvöldkaffi. Ég vil bara þakka öllum sem mundu eftir mér og sendu mér afmæliskveðjur, sorry að ég svaraði ekki til baka, var svo voðalega upptekin, erfitt að vera vinsæll ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 17:35:48 / hvanneyrun

Hann er maðurinn sem að langar og reynir að komast konu á.....

já kæru lesendur....undur og stórmerki gerast enn, Eyrún er að blogga!

Það er ansi margt sem hefur á daga mína drifið undanfarið og bera það fyrst að nefna að Pólverjarnir sem eru búnir að vera í vinnu hjá okkur á búinu ákváðu að stinga af og gáfu okkur rétt um sólarhrings fyrirvara á brottför sinni. Góðu ráðin vor fjandi dýr og niðurstaðan var sú að ég samdi við skólastjórann um skilin á lokaverkefninu og ferilmöppunum og flutti heim í sveitina þar sem ég er farin að vinna. Síríöslí... Sauðburðurinn er byrjaður og öll vorverkin eftir. Þetta eralveg allra versti tíminn til að láta sig hverf svona! Anyways, ég er s.s flutt útí Reykjaskóla. Þeir sem vilja kíkja í kaffi til mín finna mig í kjallaraíbúðinni á suðurendanum á strákavistinni. Sama dag og póverjapakkið tilkynnti brottför sína lenti Guðrún systir í bílslysi. Hún slasaðist sem betur fer ekki alarlega en það er nú samt nógu fjandi vont að vera tognuð í bakinu! Héðan af er það föstudagurinn 13. hvað?... sunnudagurinn 22. er mun hættulegri!


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.04.2007 12:50:44 / hvanneyrun

living longer than I had intended, something must have gone right!

jæja þá er páskafríið búið og ekki fór ég suður í það skiptið (fyrir utan dags-skrepp með Elsu vinkonu) því ég var of upptekin við að vera löt. Fór á 2 böll, annað í Víðihlíð með Spútnikk og hitt á Blönduósi með Á Móti Sól. Ég verð bara að viðurkenna að ég skemmti mér muuun betur á fyrrnefndaballinu enda var ég plötuð í að keyra Rassinn á það síðarnefnda. Þegar ég kom inn á það ball mundi ég allt í einu hvað mér finnst Á Móti Sól afspyrnu leiðinleg hljómsveit þannig að ég fór bara aftur út í Rassinn og sat þar með Ella og Jóni Ingvari þangaðtil restin af strákunum komu og við gátum haldið heimáleið. Ekki fékk ég þá ósk mína uppfyllta því þegar við ætluðum að leggja af stað var sprungið á Rassinum og ekkert varadekk með í för. Það tók dágóðan tíma að redda málunum og ég skreið ekki uppí rúmið mitt fyrren um 8:30 um morguninn. Ævintýri sem ég er ekki til í að upplifa aftur! Skemmtilegurstu punktar kvöldsins voru ferðin á ballið, þegar ég dansaði við Óla bróður í hléinu og þegar ég sat úti í Rassinum með strákunum (tókuði eftir að hljómsveitin og ballið sjálft komu þarna hvergi nærri?) En jamm og jæja, þýðir víst lítið að síta orðinn hlut heldur skal draga af þessu lærdóm. Sá lærdómur er: #1: Aldrei að fara edrú á ball með Á Móti Sól #2: Alltaf að tékka á varadekkinu áður en lagt er af stað

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.03.2007 18:40:20 / hvanneyrun

Lets just pretend that we are someone else and we're ment to be...

Ekki fór ég að Hesti í dag...þar er veðrinu alfarið um að kenna. í staðinn fórum við mæðgur (ég, mamma og Guðrún) í svaka labbitúr uppá háls og svo útá naustatanga (heilsuátak í gangi og labbitúr á hverjum degi ;) ) Útá Naustatanga settumst við á rekaviðardrumba í fjörunni og hvíldum okkur smá stund... Það var svakalega forvitinn selur á sundi þarna undan ströndinni og hann kom nánast alveg upp í flæðarmálið að skoða okkur, rosa dúlla. Við Guðrún vorum voða mikið að spjalla við hann og allan tímann hélt Píla að við værum að tala við hana og réð sér ekki fyrir kæti yfir allri athyglinni sem hún var að fá þarna. Hringsnerist með rassaköstum og dilleríi í kringum okkur og skreið við og við uppí fangið á okkur til að fá knús...hún er svo mikið yndi!!!.... Í labbitúrnum mínum í gær var ég að ganga í fjörunni þegar ég sá haförn á sveimi... ungfugl... ég var svo æst í að sjá hann betur að ég gargaði eitthvað á hann og þá kom hann og sveif fyrir ofan mig og glápti geðveikt mikið niður á mig... hefur örugglega verið furðulostinn yfi þessum furðufugli þarna á sléttunni, jóðlandi eins og fáviti... hann var svo miiikið beint fyrir ofan mig að hefði hann skitið hefði það örugglega lent í andlitinu á mér. Annars erum við í skúlptúragerð í skólanum þessa dagana. Ég heimtaði að fá að vera bara heima hjá mér í sveitinni að vesenast í þessu. Enda þurfum við að bera allan kostnað af þessu sjálf þannig að mér fannst bara mun gáfulegra að nýta mér þessa fínu skemmu sem við eigum hérna á hlaðinu og öll verkfærin hans föður míns. Það væri meira að segja ekki verra að finna sér eitthvað efni til að vinna úr hérna heima.... Hef sterkan grun á því að það eigi eftir að hafa eitthvað með rekavið eða ónýtar vélar að gera ;) ....einhverjar hugmyndir???...anyone???

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 19:12:17 / hvanneyrun

I can't resist the thought of you alone on the phone with me....

Jarm lömbin mín…. Ég fór með foreldrunum í svaka göngutúr í góða veðrinu áðan. Það var stórstreymd fjara og við náðum að labba alveg út að selasteinunum og þaðan nánast beint yfir á naustatangann sem er í Tannstaðalandi (yfirleytt er það ekki hægt en í þetta skiptið var stórstreymt sem aldrei fyrr, hef sko aldrei náð að labba alveg út að selasteinum) Veðrið hefur hagað sér undarlega síðustu daga… á Laugardaginn var geggjuð sól og blíða…það skein svo mikil sól innum gluggana í fjárhúsunum þegar við vorum að rýja að við fengum ofbirtu í augun af hvítri ullinni… svo um kvöldið var komið vitlaust veður og var alveg brjálað á sunnudaginn…sem er ástæðan fyrir því að ég fór ekki í skólann..En í dag er veðrið búið að leika við okkur….nennti samt ekki að fara á Ak í morgun til að ná skólanum seinnipartinn. Enda erum við í þannig verkefnum að við getum vel unnið þau heima.

 

Annars er þetta http://landbunadur.is/landbunadur/wgsamvef.nsf/key2/gthor6zfeaj.html  um að vera á laugardaginn og ætla ég að skella mér… Reyni að draga Eydísi með mér enda er hún eina vinkona mín sem hefur jafn mikinn áhuga á sauðfjárrækt og ég 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 00:21:04 / hvanneyrun

I´m watching your picture on the wall, The feeling grows stronger, I should call....

I've hit a new low!!... Er ein heima á laugardagskveldi og hef ekkert betra að gera en að sötra bjór og spila tölvuleiki (leikur1.is --> bubbleshooter og mahjong).

Ég var reyndar bara rétt í þessu að koma inn úr húsunum. Fór út að bæta heyi á kýrnar fyrir nóttina og kom við í fjárhúsunum í leiðinni til að tékka hvort gamla rollan (11 vetra hvorki meira né minna) sem eignaðist lömb um daginn (gömul en greinilega ekki dauð úr öllum æðum ;)) væri með nóg að éta (Því hún er horuð og gömul og þarf að mjólka 2 gráðugum lömbum). Þegar ég mæti á svæðið tekur á móti mér einn allsherjar kór af jarmi og bauli, Það hefði mátt halda að skepnurnar hefðu hvorki fengið vott né þurrt svo dögum skipti.... ég mátti gera svo vel að gefa bæði fénu og nautgripunum með heygaffal og hjólahvísl einar að vopni þar sem avantinn (sýnishorn af traktor sem er notað við gjafirnar hérna) var bensínlaus og ekkert bensín til á bænum. Það sem átti s.s. að vera hálftíma skrepp útí fjós varð að 2 tíma heymokstri.... égeraðspáíaðfarípottin.... helstmeðeinnkaldann!!!

See you on the flipside!!!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2007 11:21:36 / hvanneyrun

I know a girl with puppy eyes who loves to be taken home for a ride....

Það er ekki alveg laust við að það sé kominn smá vorfiðringur í mann. Ástæðan er sú að fyrstu lömbin voru að koma í heiminn í morgun (fyrir ca 1-2 tímum síðan). Þau eru lítil og bústin og framleiða eitt sætasta hljóð í heiminum. Annars er ég hætt að vera lasin (loksins) náði að mæta alla síðustu viku í skólann en er heima núna á mánudegi því Affí er komin með flensuna og hún átti að vera að kenna okkur í allan dag (Reyndar á hún að vera að kenna okkur allan daginn alla daga (nema um helgar) næstu 4 vikurnar, eða fram að páskafríi) Veturinn hefur annars haldið til á Akureyri síðustu vikuna (ef einhver er að leyta að honum). Það er bara búið að vera slabb og hálka niðrá eyri, en uppí brekkum (þar sem ég er) er nánast því búið aðvera bara jeppafæri (gott ég er á Patrol!)

» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 10:30:09 / hvanneyrun

So what do you know? oh you don't know nothing...

Bara aðeins að láta vita að ég er é lífi. Naumlega þó ;) Var veik í rúmar 2 vikur, hitti doktorinn og hann setti mig á sýklalyf....Það fannst annars ekkert hvað var að mér nákvæmlega. Var ekki með streptokokka, bara óeðlileg fjölgun á hvítum blóðkornum sem benti til einhverrar sýkingar, já og svo vantaði einhver efni í blóðið hjá mér, einhver sölt eða eitthvað, svona eins og ég liði næringarskort!... hálf fáránlegt að vera feit og pattaraleg og líða næringarskort! En allt er víst hægt og ég verð víst bara að hætta að lifa á svona einhæfu mataræði...meiri ávexti og grænmeti og svoleiðis....Anyways...er orðin hresss núna, fyrir utan að ég er búin að missa helling úr skólanum og er alveg í fullu starfi og meira til við að ná upp töpuðum tíma, og ofan á allt saman þá virðist ég vera að fá útbrot um allan líkamann, mjög líklega útaf sýklalyfjunum. En ég harka það nú bara af mér...bara 1 dagur eftir af kúrnum hvort sem er...og það er nú ekkert tilefni til að grenja yfir er það?

» 2 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 17:08:34 / hvanneyrun

þakinn rósum, kaldur vill ekki svara, hvort ást til mín í hjartanu þú berð...

Ég er búin að komast að því að sú einfalda athöfn "að blogga" á alveg einstaklega illa við mig. Ekki það að ég hafi ekki margt að segja frá mínu innihaldsríka og spennandi lífi. Það einfaldlega þurrkast bara allt úr heilanum á mér um leið og ég sest niður við tölvuna og útkoman verður eitt stórt BLEH...

Það var þorrablót hjá okkur hérna í ástkærri sveitinni minni um seinustu helgi og ég verð nú bara að halda því fram að þetta var hreinlega eitt það allra best heppnaða þorrablót sem ég hef upplifað. Skemmtiatriðin voru góð (Gísli á Staðarbakka fór á kostum í hlutverki Dúdda og síðar Magna), Maturinn var góður (það af honum sem ég smakkaði ;) ) og hljómsveitin á ballinu var góð (Von).... ég bjóst nú við einhverjum skotum á familíuna mína þar sem við höfum staðið í frekar miklum framkvæmdum seinasta árið en vá.... Við fengum nú bara heilann leikþátt OG lag útaf fyrir okkur...mér varð illt í maganum, ég hló svo mikið. Svo var gamla settið valið maður- og kona ársins. Ég dansaði sem óð væri á ballinu ásamt Sibbu og Elsu en heilsan daginn eftir leifði því miður ekki langferðir og varð ég af þeim sökum að sleppa stelpuparýi í bænum....það gengur bara betur næst :)

Hvað um það.... Valentínusardagurinn er nýafstaðinn...eina kveðjan sem ég sendi þetta árið var til Sibbu vinkonu því hún á afmæli þennan margrómaða dag. Annars finnst mér frekar hallærislegt að kaupmenn séu að þröngva þessum ameríska sið uppá okkur blásaklausa íslendinga og það á milli bóndadags og konudags sem eru gamlir og góðir íslenskir tillidagar. Þetta er nú einum of!


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.02.2007 14:13:20 / hvanneyrun

Stundum heyri ég hlátur, í gólffjölum marra. Hjartað tekur kipp... en það er ekkert hér.....

Jæja þá, Frekar lítið að frétta héðan, best að hafa þetta bara í punktum!

 

 



·        Fór á háskóladjamm með Sindra frænda hérna á Akureyri um þarsíðustu helgi...það var mega fínt og gaman að hitta hann aftur (hef ekki hitt hann síðan um réttirnar)

 

 



·        Keyrði mikið um seinustu helgi. Akueyri - Tannstaðabakki, Tannstaðabakki - Sauðárkrókur - Tannstaðabakki, Tannstaðabakki - Reykjavík - Tannstaðbakki og Tannstaðabakki - sauðárkrókur - Akureyri...Held að þetta hafi verið rétt um eða yfir 1000 kílómetrarnir

 

 



·        Ástæðan fyrir Rvk ferðinni var stelpupartý hjá Árnýju og skemmti ég mér konunglega þar og niðrí bæ eftir það.

 

 



·        HM í handbolta er búið að vera í algleymingi og ég hreinlega barasta skil ekki fólk sem fylgist ekki með þessu og er bara alveg sama (meirhlutinn af fólkinu í skólanum hjá mér t.d.) Ég er meira að segja búin að skrá mig í stuðningsmannasamtökin "í blíðu og stríðu"

 

 



·        Pabbi lógaði Sóma mínum í dag...ég er leið (fyrir þá sem ekki vita var Sómi heimalningur hjá okkur árið 2001 og hefur alla tíð verið í miklu uppáhaldi hjá okkur systrunum) En svona er lífið og hann var víst bara orðinn gamall og hættur að gera nokkuð gagn.

 

 



·        Er að fara heim eftir skólann og ætla helst bara að taka því rólega heima í sveitinni (var svo dauð uppgefin eftir þvælinginn um seinustu helgi!)

 

 



·        Þorrablót í Ásbyrgi um næstu helgi og Von verður að spila á ballinu. Stelpuhittingur hjá littlu grúppunni (Ég, Inga, Elísa, Katla og Anna Silla) daginn eftir í Rvk og engar afsakanir fyrir að mæta ekki!


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 23:34:30 / hvanneyrun

Stand alone and greet the coming night, in the last remaining light....

Jahérna hér hvað ég er yfir mig latur bloggari. Hérna sit ég heima í sveitinni því ég er lasin. Náði að mæta 1 dag í skólann og var svo bara orðin veik, og hvað er þá betra en að fara bara heim til mömmu? Hér er heilnæmt loft (engin reykingastybba) og rúmið mitt er mikið betra og mýkra og stærra hérna en það sem ég sef í á Ak.

     Jólafríið er annars búið að vera gott….fór alls x3 á suðurlandið. Einusinni fyrir jól í einhverjar jólareddingar, svo fór ég á Selfoss á annan í jólum ballið. Það var haldið í Hótelinu og var Bjórbandið að spila…bara rétt eins og í gamladaga ;) Það voru rosalega margir á þessu balli, um 800 manns heyrði ég daginn eftir, enda var frekar troðið þó hótelið sé stórt. Enda þurfum við Elísa að bíða í nærri hálftíma eftir afgreiðslu á barnum í eitt skiptið og misstum fyrir vikið algerlega af hljómsveitinni hans Ingó idols sem að spilaði í hléinu (man því miður ekki hvað hún heitir). Svo var engin gæsla í fatahenginu þannig að jakkanum mínum var stolið, með bíllyklunum hennar mömmu í vasanum (af nýja, fína Skodanum). Það var smá panikk sem reddaðist þó að lokum því einhver hafði bara tekið jakkann í misgripum og skilaði honum aftur á hótelið um kvöldið…shjúkket!...upphaflega planið hafði verið að fara í heimsóknir til t.d. Kötlu og Önnu Sillu en þar sem ég var bæði bíl- og jakkalaus, föst á Selfossi komst það ekki í verk. Þegar ég loksins fékk jakkann minn og lyklana aftur var ég orðin þreytt og pirruð og fór bara beinaleið heim til mín. Svo fór ég suður um seinustu helgi. Planið var að fara og tjútta í bænum með Sibbu vinkonu á laugardeginum þannig að ég fór bara á föstudeginum og afgreiddi fyrrnefndar heimsóknir. Ég var send á Patrolnum (greinilega ekki treyst fyrir skodanum aftur eftir hrakfarir síðustu ferðar) en nei….hann bilaði á Selfossi (altarnatorinn var ónýtur og kagginn hætti að hlaða) Ég fékk Toyotuna lánaða hjá Daníel (pólverji sem er að vinna hjá okkur uppí Grímsnesi) til að komast í bæinn að hitta Sibbu en ekki komumst við út í þetta skiptið því skvísan var orðin veik (Það er bæ ðö vei búið að vera á dagskrá hjá okkur í meira en 1 og hálft ár…eða síðan áður en ég fór út til Englands…að fara saman og tjútta í bænum en alltaf hefur komið eitthvað uppá sem aftrar því….Ég er farin að halda að þetta séu einhver álög!) Við Bára forum því bara einar út á lífið og vorum á pubbarölti langt fram á morgun. Það var alveg rosa gaman! ;) Svo gisti ég bara hjá Báru og dagurinn eftir var tekinn rólega á náttfötunum yfir videoglápi þangað til að ég þurfti að fara á Selfoss aftur að skila bílnum. Á Selfossi beið ég svo þangað til á hádegi á mánudeginum þegar Patrolinn var búinn í viðgerð og gat ég þá loksins farið heim! Ég er farin að halda að mér sé ekki ætlað að heimsækja Selfoss hrakfallalaust…allavega bílamálalega séð! Eða er kannski málið að mér er bara ælað að vera á Selfossi?!? Anyways, ætla ekki að hafa þetta lengra í bili….verð að fara að sofa aftur því ég er Bara búin að vera sofandi í allan dag (fyrir utan þessa 3 tíma sem það tók að keyra hingað)


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10